|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Keyrsla á plöntum í dreifingarstöðvar hafin (18.05. 2012) Nú er blessuð sólin farin að skína og útlit fyrir suðlægar áttir svo langt sem veðurspáin nær. Búið er að keyra birki, lerki og ösp í Krithól og sömu tegundir fara í Miðhóp í dag. Á mánudag verður farin ferð í Vagli í Fnjóskadal og önnur á Krithól. Greni verður ekki keyrt í dreifingarstöðvarnar eða afhent frá Kjarna fyrr en hætta á næturfrostum er liðin hjá. Plöntur koma í Sandfellshaga eftir 25 maí. Byrjað verður að afhenda plöntur frá Kjarna á næstkomandi þriðjudag. Nauðsynlegt er að hafa samband við dreifingarstöðvarnar áður en farið er að sækja plöntur og ef notaðar eru kerrur í einkaeigu verða þær að vera lokaðar til þess að plöntur skemmist ekki í flutningum. Áríðandi er að skila tómum bökkum í dreifingarstöðvar þegar gróðursetningu er lokið. Sjá yfirlit yfir dreifingarstöðvar og símanúmer
|
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Í vor, sem önnur vor, fylgir fræðsluefni með í vorbréfum til bænda. Þar er að finna leiðbeiningar bæði vegna gróðursetningar og skráninga gróðursetninga sem skila verður inn fyrir 6. Júlí. Sjá fræðsluefni hér að neðan. Leiðbeiningar um framkvæmdaskráningu , Rétt tegund í rétta landgerð , Áburðargjöf og gróðursetning |
Dreifingarstöðin í Miðhópi, V-Hún. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Norðurlandsskógar
| Gömlu gróðrarstöðinni | Krókeyri | 600
Akureyri | Sími 461 5640 | Fax 461 5648 | nls@nls.is |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||