Fréttir
Á döfinni
Lykiltölur
Myndasafn
Fræðsluefni
: skógrækt
: skjólbelti
Skógarbændur
: eyðublöð
: vinnureglur
: taxtar
Félag skógarbænda
Björkin
Lög og reglugerðir
Starfsfólk
Forsíða
Eldri viðburðir

Grænni skógar II - Skógastígar - lagning og notagildi (13.09.2011)

Á næsta grænni skóga námskeiði verður fjallað um skógarstíga - lagningu þeirra og notagildi. Námskeiðið verður haldið 21. og 22 okt. á Eyjafjarðarsvæðinu, nánari staðsetning verður auglýst síðar. Leiðbeinendur verða Björgvin Eggertsson og Bergsveinn Þórsson. Fjallað verður um mikilvægi vega/slóða í nytjaskógrækt og aðferðir við lagningu þeirra. Þá er farið yfir helstu aðferðir og tæki sem notuð eru við að ná viðnum úr skógi og hvernig vegir nýtast við eldvarnir.

 

Skógarkvöld félags skógarbænda (28.06.2010)

Félag skógarbænda á Norðurlandi stendur fyrir skógarkvöldi í ár líkt og undanfarin ár. Í ár verður Reykhúsaskógur í Eyjafirði, hjá skógarbændunum Páli og Önnu heimsóttur þann 22. júlí kl. 20. Reykhús er norðan þéttbýliskjarnans við Kristnes og í beinu framhaldi af Kristnesskógi. Safnast verður saman við Reykhús og farið í gögnuferð um skóginn undir leiðsögn Páls og Önnu, á eftir verður boðið upp á ketilkaffi og með því að hætti skógarmanna. Skógarbændur og aðrir áhugamenn um skógrækt eru hvattir til að fjölmenna.

Loka námskeið Grænni skóga (03.06.2010)

Um helgina verður loka námskeiðið í námskeiðaröðinni Grænni skógar I sem fór af stað árið 2007. Um 25 skógarbændur munu útskrifast af námskeiðinu. Á þessu þriggja ára tímabili hafa verið haldin 15 helgarnámskeið, auk þess sem farin var námsferð til Skotlands. Þetta er annar hópurinn hjá Norðurlandsskógum sem klárar Grænni skóga I, annar hópur útskrifaðist árið 2005. Stefnt er að framhaldi, Grænni skógum II á næsta ári. (VJ)

 

Aðalfundur félags skógarbænda (29.03.2010)

verður haldinn að Narfastöðum, Reykjadal
föstudaginn 9. apríl 2010 og hefst kl. 20:00
Dagskrá
  1. Fundarsetning.
  2. Skýrsla stjórnar.
  3. Ársreikningar 2009.
  4. Tillögur.
  5. Umræður.  
  6. Kosningar.
  7. Önnur mál.
  8. Erindi

Norðurlandsskógar –
 Valgerður Jónsdóttir framkvæmdastjóri
Timbursala úr íslenskum skógum –    
Þröstur Eysteinsson, Skógrækt ríkisins

Kaffi og meðlæti í boði félagsins.
Stjórnin.

 

Grænir fimmtudagar hjá Garðyrkjufélaginu (24.02.2010)

Grænir fimmtudagar
Nú þegar daginn er farið að lengja hefur
Garðyrkjufélag Akureyrar starfsárið með stuttum opnum fundum um eftirfarandi málefni:

 

18. febrúar - Sáning og undirbúningur fyrir sumarið
Staðsetning: Ræktunarstöð Akureyrarbæjar

25. febrúar - Kynning á Nytjagörðunum
Staðsetning: Ræktunarstöð Akureyrarbæjar

4. mars - Tré í görðum
Staðsetning: Gömlu gróðrarstöðinni við Krókeyri á Akureyri

11. mars - Klippingar trjáa og runna
Staðsetning: Gömlu gróðrarstöðinni við Krókeyri á Akureyri

18. mars - Klifurjurtir
Staðsetning: Gömlu gróðrarstöðinni við Krókeyri á Akureyri

25. mars - Kartöfluræktun
Staðsetning: Gömlu gróðrarstöðinni við Krókeyri á Akureyri

8. apríl - Blómabeð
Staðsetning: Gömlu gróðrarstöðinni við Krókeyri á Akureyri

 

Allir velkomnir og samkomurnar byrja allar klukkan 20:00.

Grænni skóga námskeið um ræktun jólatrjáa (12.02.2010)

 

Námskeiðið verður haldið í Gömlu gróðrarstöðinni, höfuðstöðvum Norðurlandsskóga á Akureyri, 26. og 27. febrúar. Dagskráin hefst að venju kl. 4 á föstudeginum. Fjallað verður um reynslu og tilraunaniðurstöður í jólatrjáaræktun hérlendis. Lýst verður hvernig ræktun er undirbúin, hvaða tegundir henta miðað við aðstæður og hvernig haga skal umhirðu til að fá sem besta nýtingu.

Leiðbeinendur verða Björgvin Eggerstsson og Böðvar Guðmundsson. Einnig mun Sigurður Skúlason skógarvörður á Norðurlandi deila reynslu sinni af málefninu.

 

Grænni skóga námskeið (19.10.2009)  
Námskeið um verndun fornminja og náttúru í skógrækt verður haldið 30. og 31. október á Hótel Varmahlíð. Það er hluti af námskeiðaröðinni Grænni skógar og er haldið í samstarfi við Náttúruvernd ríkisins og Minjavernd ríkisins. Fjallað verður um gildi náttúruverndar og minjaverndar almennt og samspil þessara þátta við skógrækt. Dagkrá hefst kl. 16.00 á föstudeginum.
Grænni skóga námskeið (21.9.2009)  

Næsta Grænni skóga námskeið verður haldið 9. og 10. október á Akureyri í Gömlu gróðrarstöðinni, skrifsstofuhúsnæði Norðurlandsskóga. Kennsla byrjar kl. 4 á föstudeginum.

Skjólbelti verða viðfangsefni námskeiðsins. Farið verður yfir markmið og tilgang ræktunar, staðsetningu skjólbelta og skipulagningu skjólbeltakerfa. Fjallað verður um uppbyggingu skjólbelta, tegundaval og skjóláhrif. Einning verður farið yfir val á landi, undirbúningi lands, plöntuval, umhirðu og viðhald skjólbelta.

Leiðbeinendur verða Valgerður Jónsdóttir og Rakel J. Jónsdóttir.

Grænni skóga námskeið (11.6.2009)  

Næsta grænni skóganámskeið verður haldið á Hótel Kea, Akureyri 19. og 20. júni. Mæting er frá kl. 16 -19 á föstudaginn og frá 9-12 á laugardaginn. Grillað í Kjarnaskógi í hádeginu á laugardaginn. Fjallað verður um Sjúkdóma og skaða í skógi. Farið verður yfir sjúkdóma á trjágróðri og skemmdir af völdum skordýra, veðurfars, skógarelda og dýra. Fjallað verður um leiðir tiil að draga úr áföllum og minnka hættuna á skemmdum með fyrirbyggjandi aðgerðum.

Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Halldór Sverrisson plöntusjúkdómafræðingur og Guðmundur Halldórsson skordýrafræðingur og rannsóknastjóri.

Aðalfundur félags skógarbænda á Norðurlandi 2009 (22.4.2009)  

Aðalfundur félags skógarbænda á Norðurlandi verður haldinn 8. maí. kl. 20 að Hólum í Hjaltadal. Dagskrá:

  1. Fundarsetning
  2. Skýrsla stjórnar
  3. Ársreikningar 2008
  4. Tillögur
  5. Lagabreytingar
  6. Umræður      
  7. Kosningar
  8. Erindi
  9. Önnur mál

Erindi:

  • Úttekt á árangri skjólbeltaræktar á Norðurlandi - Rakel J. Jónsdóttir
  • Norðurlandsskógar, staða verkefnisins - Valgerður Jónsdóttir
  • Starfið hjá Landssamtökum skógareigenda - Björn B. Jónsson

Kaffi og meðlæti í boði félagsins.
Stjórnin.

 

Grænni skóga námskeið (31.3.2009)

Yfirskrift næsta grænni skóga námskeiðs er skógrækt og ferðaþjónusta. Fjallað verður um fjölbreytt notagildi skóga til eflingar ferðaþjónustu. Kynnt verður hvernig auka megi útivistargildi skóga, hvernig skapa má skógarmenningu á Íslandi og fjallað verður um útivist og viðburði sem tengjast viðfangsefninu.

Kennari námskeiðsins er Hallgrímur Indriðason, skógræktarráðunautur á skipulagssviði. Námskeiðið verður haldið að Hólum í Hjaltadal, 8. og 9. maí næstkomandi.

Grænni Skógar (17.3.2009)

Næsta grænni skóga námskeið fjallar um skógarnytjar. Skoðaðar verða allar mögulegar nytjar skógarins og náttúruupplifun honum tengdar. Farið verður í tálgunaraðferðir og þátttakendur fá að upplifa af eigin reynslu efniseiginleika ólíkra trjátegunda.

Kennari námskeiðsins er Ólafur Oddsson og verður námskeiðið haldið á Vöglum í Fnjóskadal. Námskeiðið er liður í námskeiðaröð Grænni skóga sem hófst árið 2007.

Fagráðstefna skógargeirans 2009 (4.3.2009)

Fagráðstefna skógargeirans 2009 verður haldin 16. og 17. april næstkomandi í sal Félagsheimilis Þróttar í Laugardal, Reykjavík.

Þeir sem standa að Fagráðstefnu skógargeirans 2009 eru:

Rannsóknastöð skógræktar, Mógilsá

Landbúnaðarháskóli Íslands. LBHÍ

Skógræktarfélag Íslands

Skógræktarfélag Reykjavíkur


Upplegg ráðstefnunnar veður eftirfarandi:

Fimmtudagur, 16 apríl 2009, salur Þróttar í Laugardal

11:00-13:00 Skráning og léttar veitingar

13:30-17:00 Fagráðstefna

17.00-19.00 Skoðunarferð

20:00 -24.00 Kvöldverður og skemmtidagskrá (Salur Þróttar í Laugardal)

Föstudagur, 17 apríl 2009, salur Þróttar í Laugardal

09:00-12:30 Fagráðstefna frh.

12:00-13:00 Hádegisverður

13:30-17:00 Fagráðstefna frh.

Væntanleg þemu ráðstefnunnar í ár verða (drög):

1. Skógrækt á krepputímum. Framtíðaráform stjórnvalda.

2. Skógrækt í hlýnandi loftslagi.

3. Ræktunartækni nytjaskógræktar og viðarframleiðsla á Íslandi.

4. Skógrækt, umhverfismál og almenningur

 

Skil á framkvæmdaskráningarblöðum(2.10.2008)
Við viljum minna á að síðasti skiladagur fyrir framkvæmdarskráningar haustgróðursetningar er 6.október næstkomandi. Sjá nánar hér að neðan.
Skil á framkvæmdaskráningarblöðum(1.7.2008)

Við viljum minna á að síðasti skiladagur fyrir framkvæmdarskráningar vorgróðursetningar er 6.júlí næstkomandi. Við minnum á að það er mikilvægt að framkvæmdaskráningarnar séu vel út fylltar og berist okkur á réttum tíma svo hægt sé að gera upp við bændur. Einnig er mikilvægt að merkja inn á kort þá reiti sem gróðursett/framkvæmt var í .

Það er ekki síst hagur skógarbænda að framkvæmdaskráningin sé rétt þannig að þeir fái örugglega greitt það sem þeim ber og Norðurlandsskógar geti haldið utan um framkvæmdir og skráð inn í gagnagrunn sinn.

Athugið að framlög verða ekki greidd fyrr en framkvæmdaskráningar hafa borist okkur.

Skógardagurinn mikli 2008! (16.6.2008)

Laugardaginn 21.júní næstkomandi verður haldið upp á afmæli bændaskógræktar á Héraði með stórhátíðinni "Skógardagurinn mikli".

Í boði verður fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna og frítt inn á svæðið.

 

1.tölublað ársins af "Við skógareigendur" komið út (24.5.2008)

Áhugasamir hafi samband við Félag skógarbænda á Norðurlandi

Ný heimasíða Landsamtaka skógareigenda(15.5.2008)

 

Landssamtök skógareigenda hafa opnað nýja heimsíðu á slóðinni: www.skogarbaendur.net .

Á henni er kynning á félaginu og landshlutabundnu aðildarfélögunum, ásamt myndum og fréttum af starfinu.

Þar kemur m.a. fram að félagið er búið að ráða sér framkvæmdastjóra til áramóta sem er Björn B Jónsson.

Grænni skógar: Framleiðsla og gróðursetninng skógarplantna 2.-3.apríl (30.4.2008)

 

Námskeiðið verður haldið á Hótel KEA á Akureyri og hefst föstudaginn 2.maí kl 16:00 og stendur til 19:00, laugardaginn 3.maí verður kennt frá 9:00-16:00.

Á námskeiðinu verða helstu fjölgunaraðferðir plantna kynntar og farið ítarlega í gegnum ferlið við fjölgun og uppeldi skógarplantna. Einnig verður fjallað um meðhöndlun plantna, gróðursetningartíma og -aðferðir.

Leiðbeinendur verða Hrefna Jóhannesdóttir, Rakel Jónsdóttir og Valgerður Jónsdóttir.

 

 
Grænni skógar: Skógarhönnun og landnýting, Narfastöðum 18.-19.apríl (1.4.2008)
Fagráðstefna skógargeirans (18.3.2008)
Fagráðstefna skógargeirans verður haldin á Hvolsvelli dagana 3. til 4. apríl 2008.
Dagskrá:

Fimmtudagur 3. apríl – Fundarsalur í Hvolnum

Ráðstefnustjórar: Björgvin Eggertsson og Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir

09:00 Ráðstefnugögn afhent

09:15 Setning: Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra.

09:20 Aukin skógrækt á Íslandi í ljósi loftslagsbreytinga: Þorsteinn Tómasson skrifstofustjóri

09.30 Sala á kolefnisbindingu: Alþjóðlegur markaður með bindingu kolefnis í skógum: Ari Skúlason ráðgjafi LÍ.

9:50 Skógrækt á auðnum Suðurlands og nýjungar í fjármögnun hennar: Einar Gunnarsson, skógfr. Skógræktarfélagi Íslands, Sigríður Heiðmundsdóttir formaður Skógræktarfélags Rangæinga og Soffía Waag Árnadóttir, framkvæmdastjóri Kolviðar.

10:10 Kaffihlé.

10:25 Rannsóknir á kolefnisbindingu í íslenskum skógum: Brynhildur Bjarnadóttir sérfræðingur á Mógilsá, Jón Ágúst Jónsson forstöðumaður Náttúrustofu Austurlands og Bjarni D. Sigurðsson prófessor við LbhÍ.

10:45 Kolefnisbókhald skóga Íslands: Arnór Snorrason sérfræðingur Mógilsá.

11:05 Líffræðileg fjölbreytni í kjölfar skógræktar: Edda S. Oddsdóttir jarðvegslíffræðingur Mógilsá.

11:25 Umræður.

12:00 Hádegisverður.

13:00 Framsetning þekkingar í nútíð og framtíð: Þröstur Eysteinsson fagmálastjóri Skógræktar ríkisins.

13:10 Líforka úr skógum: Nýir markaðir fyrir skógarafurðir. Hvað er að gerast á alþjóðavettvangi og hverjir eru möguleikarnir: Bjarni Diðrik Sigurðsson prófessor við LbhÍ.

13:30 Áform íslenska lífmassafélagsins um opnum og rekstur verksmiðju á Íslandi:

Valdimar K. Jónsson Prófessor við HÍ.

13:50 Hefur skógrækt áhrif á vatnalíf? : Helena Marta Stefánsdóttir meistaranemi við LbhÍ, Jón S. Ólafsson, sérfræðingur á Veiðimálastofnun og Gísli Már Gíslason prófessor við HÍ.

14:10 Stærð skóglendis á Íslandi:Björn Traustason sérfræðingur á Mógilsá.

14:30 Kaffihlé.

14:45 Hitastigsþröskuldur fyrir skógarmörk á Íslandi: Christoph Wöll ráðgjafi hjá Skógráð ehf..

15:05 Breytt veðurfar og skaðvaldar: Guðmundur Halldórsson rannsóknarstjóri Lr og Halldór Sverrisson plöntusjúkdómafræðingur á Mógilsá og lektor við LbhÍ.

15:30 Umræður.

16:45 Farið í Gunnarsholt.

17:00 Boð Landgræðslunnar í Gunnarsholt.

18:30 Farið frá Gunnarsholti.

19:30 Fordrykkur í Sögusetrinu.

20:00 Kvöldverður á Hótel Hvolsvelli.

Föstudagur 4. apríl – fundarsalur í Hvolnum.

09:00 Ilmreynir -Sorbus aucuparia. Kvæmarannsóknir: Harpa Dís Harðardóttir svæðisstjóri Suðurlandsskóga og nemi við LbhÍ.

09:10 Skemmdir á trjágróðri af völdum ertuyglu: Hrönn Guðmundsdóttir svæðisstjóri Suðurlandsskóga og nemi við LbhÍ.

09:20 Mat á lifun og árangri hjá landshlutaverkefnunum á Norður- og Austurlandi:
Bergsveinn Þórsson svæðisstjóri Norðurlandsskóga og nem við LBHI og Valdimar Reynisson meistaranemi í skógfræði við Sænska landbúnaðarháskólann og LbhÍ.

09:40 Yndisgróður - Runnar og tré fyrir skjólbelta-, útivistar- og borgarskógrækt: Jón Kr. Arnason verkefnisstjóri við LbhÍ og Samson Bjarnar Harðarson landslagsarkitekt F.Í.L.A./Lektor í landslagsarkitektúr LbhÍ.

10:00 Þáttur sveppróta í uppeldi plantna og uppgræðslu lands: Úlfur Óskarsson lektor við LbhÍ.

10:20 Kaffihlé.

10:40 Aðferðir við mat á gæðum skógarplantna: Hrefna Jóhannesdóttir sérfræðingur á Mógilsá.

11:00 Geymsla tjáplantna á frysti:Rakel Jakobína Jónsdóttir meistaranemi í skógfræði við Sænska landbúnaðarháskólann og LbhÍ og starfsmaður Norðurlandsskóga og Hallur Björgvinsson svæðisstjóri Suðurlandsskóga.

11:30 Betri tré: Klóna- og kvæmaval á trjátegundum til skógræktar, m.a. með tilliti til viðnámsþrótts gegn ýmsum plágum: Halldór Sverrisson plöntusjúkdómafræðingur á Mógilsá og lektor við LbhÍ og Aðalsteinn Sigurgeirsson skógerfðafræðingur á Mógilsá .

11:50 Umræður.

12:15 Hádegisverður.

13:15 Ræktunarland í framtíðinni: Áslaug Helgadóttir prófessor og deildarforseti Auðlindadeildar við LbhÍ

13:30 Flokkun lands eftir framleiðslugetu: Torfi Jóhannesson verkefnisstjóri Vaxtasamnings Vesturlands.

13:50 Umræður.

14:15 Pallborð: allir fyrirlesarar: Stjórn umræðu: Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir og Sveinn Runólfsson.

15:00 Ráðstefnuslit.

Þátttakendur eru beðnir að tilkynna sig á Hótel Hvolsvöll í tölvupóstfangið hotelhvolsvollur@simnet.is eða í síma 487 8050. Rástefnugjald er krónur 16.000.- (18.000.- í eins manns herbergi)

Innifalið: Ráðstefnugögn, gisting eina nótt í tveggja manna herbergi á Hótel Hvolsvelli, morgunverður, hádegisverðir, hátíðarkvöldverður með fordrykk og tónlist, kaffi/te og ávextir og grænmeti á meðan ráðstefnu stendur.Aukagistinótt með morgunmat krónur 4000.- á mann í tveggja manna herbergi, 7000 krónur í eins manns herbergi.

Ef gisting verður ekki nægileg á Hótel Hvolsvelli þá verður séð fyrir sambærilegri gistingu í nágrenni Hvolsvallar.Nánari upplýsingar um ráðstefnuna eru veittar á netfanginu bjorn@sudskogur.iseða í síma 480 1800.

Aðalfundur landssamtaka skógareigenda (18.3.2008)

Haldinn á Hvolsvelli dagana 4.-5.apríl 2008. Dagskrá fundarins má finna hér.

Frá Félagi skógarbænda á Norðurlandi(28.11.2007)

Félag skógarbænda á Norðurlandi auglýsir eftir hugmyndum að kennimerki (logo) fyrir félagið. Stjórn félagsins mun svo velja úr innsendum hugmyndum og láta fagmenn fullvinna kennimerkið .

Tillögum skal skila til formanns félagsins, Álfhildar Ólafsdóttur, Kringlumýri 4, 600 Akureyri, eða á netfangið alfhildur1@simnet.is

Endurnýjun skógræktarsamninga (22.11.2007)
Í kjölfar gildistöku nýrra laga um landshlutaverkefnin í skógrækt, sem samþykkt voru á síðasta ári, hefur verið gert nýtt samningsform um skógrækt.
Helstu breytingar eru þær að í nýju lögunum er ekki gert ráð fyrir endurgreiðslu skógarbænda af afurðum eins og var í eldri lögum og nú eru skýr ákvæði um endurgreiðslu skógræktarframlaga og fyrningu þeirra og ákvæði um þau tilvik þegar skógarbóndi hefur vanefnt samning, skógarbóndi vill segja upp samningi eða skógræktarverkefni vill sjálft losna undan samningi.

Skógræktarsamningar sem gerðir voru með stoð í eldri lögum halda gildi sínu og ákvæði nýju laganna gilda um eldri skógræktarsamninga eftir gildistöku þeirra, eftir því sem við á. Öllum skógarbændum sem eru með eldri samninga er gefinn kostur á að gera nýjan samning í kjölfar gildistöku nýju laganna með þeim lögfylgjum sem þeim fylgja.
Bændur sem kjósa að gera ekki nýjan samning eru skuldbundnir af gamla samningnum, og þeim réttindum og skyldum sem af honum leiða.

Á næstu dögum munu skógarbændur fá bréf þar sem nýr samningur verður kynntur. Skógarbændur í Þingeyjarsýslum fengu sent slíkt bréf í vor.
Þeir skógarbændur sem óska eftir að gera nýjan samning eru beðnir að fylla út eyðublað sem fylgir bréfinu og senda til okkar sem fyrst. Einnig er hægt að senda inn beiðni um endurnýjun í gegn um heimasíðuna okkar undir tenglinum endurnýjun samninga. Við munum í framhaldinu útbúa nýjan samning og senda til undirritunnar.

Grænni skógar 1 (10.10.2007)

Næsta námskeið Grænni skóga 1 verður haldið 19.-20.október í Ljósheimum í Skagafirði.

Á föstudeginum 19. verður kennt klukkan 16-19 og á laugardeginum 20. kl. 9-16.

Fjallað verður um undirbúning lands til skógræktar. Fjallað um mismunandi landgerðir, helstu eiginleika þeirra og undirbúning skógræktar eftir aðstæðum. Kynntir verða mismunandi þættir í undirbúningi lands fyrir skógrækt, s.s. uppgræðsla, áburðargjöf, jarðvinnsla og slóðagerð.

Skil á framkvæmdaskráningablöðum(4.10.2007)

Síðasti skiladagur framkvæmdaskráninga vegna haustgróðursetningar er 6. okt. Við minnum á að það er mikilvægt að framkvæmdaskráningarnar séu vel út fylltar og berist okkur á réttum tíma svo hægt sé að gera upp við bændur. Einnig er mikilvægt að merkja inn á kort þá reiti sem gróðursett/framkvæmt var í .

Það er ekki síst hagur skógarbænda að framkvæmdaskráningin sé rétt þannig að þeir fái örugglega greitt það sem þeim ber og Norðurlandsskógar geti haldið utan um framkvæmdir og skráð inn í gagnagrunn sinn.

Athugið að framlög verða ekki greidd fyrr en framkvæmdaskráningar hafa borist okkur.

Aðalfundur Skógrækarfélags Íslands (15.8.2007)
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands árið 2007 verður haldinn á Egilsstöðum dagana 17.-19. ágúst og verður haldinn í Menntaskólanum á Egilsstöðum.

Fundurinn hefst kl. 10:00 föstudaginn 17. ágúst, en afhending fundargagna byrjar hálftíma fyrr.

Laugardaginn 18. ágúst hefst dagskráin kl. 9:30.

Um kvöldið er kvöldvaka í Menntaskólanum og hefst hún kl. 20:00.

Sunnudaginn 19. ágúst hefst dagskráin kl. 9:15.
Áætluð fundarlok eru um hádegið.

Nánar á heimasíður Skógræktarfélags Íslands

Aðalfundur Landssamtaka skógareigenda (15.8.2007)
Aðalfundur Landssambands skógareigenda 2007 verður haldinn í Grunnskólanum á Reykhólum á Barðaströnd 24. – 26. ágúst.
Þema fundarinns verður "Menntun skógarbænda, Grænni skógar"
Gistingu er hægt að fá á hóteli Bjarkarlundi sími 434-7762, Gistiheimilinu Álftalandi sími 434-7878 og í Bændagistingu Miðjanesi sími 434-7787 og 893-7787

Dagskrá:


Föstudagur 24. ágúst

Kl. 16.00 Setning aðalfundar LSE

Ávarp formanns LSE og skýrsla stjórnar lögð fram

Gjaldkeri leggur fram reikninga LSE

Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga

Skipaðir formenn nefnda, mál lögð fram og vísað til nefnda

Kl. 18.00 Fræðsluerindi um Grænni skóga, Björgvin Eggertsson

Almennar umræður um Grænni skóga

Kl 19.00 Kvöldverður

Kl 20.00 Nefndarstörf

Laugardagur 25. ágúst

Kl. 9.00 Framhald nefndarstarfa

Kl. 10.00 Tillögur afgreiddar úr nefndum

Kl. 12.00 Hádegisverður

Kl. 13.00 Ávarp formanns LSE og gesta

Kl. 14.00 Kosningar

Önnur mál

Kl. 15.00 Aðalfundi slitið

Kl.15.30 Skoðunarferð í Hvalhaushólma.

Gengin verður Grétisstígur, komið verður við á Tittlingastöðum og þaðan fram í Hvalhaushólma.

Kl. 19.00 Árshátíð LSE í fundarsal

Sunnudagur 26. ágúst

Skoðunarferð á eigin bílum, farið í Jochumskóg og Teigsskóg. Leiðsögumenn Arnlín Óladóttir og Magnús Rafnsson.

Skiladagur framkvæmdaskráninga (6.6.2007)  


Síðasti skiladagur framkvæmdaskráninga vegna vorgróðursetninga er 6. júlí. Við minnum á að það er mikilvægt að framkvæmdaskráningarnar séu vel út fylltar og berist okkur á réttum tíma svo hægt sé að gera upp við bændur. Einnig er mikilvægt að merkja inn á kort þá reiti sem gróðursett/framkvæmt var í .

Það er ekki síst hagur skógarbænda að framkvæmdaskráningin sé rétt þannig að þeir fái örugglega greitt það sem þeim ber og Norðurlandsskógar geti haldið utan um framkvæmdir og skráð inn í gagnagrunn sinn.

Athugið að aframlög verða ekki greidd fyrr en framkvæmdaskráningar hafa borist okkur.

Norðurlandsskógar | Gömlu gróðrarstöðinni | Krókeyri | 600 Akureyri | Sími 461 5640 | Fax 461 5648 | nls@nls.is