| Ef ekki eru hafnar framkvæmdir
innan árs frá undirritun samnings skulu NLS rita viðkomandi
skógarbónda bréf þar sem honum er gefin
eins árs frestur til að hefja framkvæmdir. Ef framkvæmdir
eru ekki hafnar innan tveggja ára frá undirritun samnings
skal samningnum rift. Sbr 15.gr samnings.
“ Vanefni skógarbóndi
skyldur sínar samkvæmt samningi þessum, ber samningsaðilum
að leita leiða til úrbóta. Sé um ítrekaðar
vanefndir skógarbónda að ræða er Norðurlandsskógum
heimilt að rifta samningnum og krefjast endurgreiðslu alls
áfallins kostnaðar ásamt verðbótum”.
Miðað er við að framkvæmdatími
sé 10 ár og gróðursett sé árlega
10% af áætluðum heildarplöntufjölda.
Ef fyrirsjáanlegt er að veruleg frávik verði
frá þeirri áætlun af einhverjum orsökum
skal skógarbóndi fara formlega fram á endurskoðun
á framkvæmdahraða skógræktaráætlunarinnar
sbr 14.gr samnings um nytjaskógrækt.
Ef framkvæmdir eitthvert árið verða undir áætlun
skal stefnt að því að vinna upp þann
mun á næstu árum.
Ef ekki er gróðursett í 2 sumur, er ekki greiddur
girðingastyrkur seinna sumarið og ekki fyrr en það
ár sem gróðursetning hefst að nýju.
|