Í kjölfar gildistöku nýrra
laga um landshlutaverkefnin í skógrækt, sem
samþykkt voru á síðasta ári, hefur
verið gert nýtt samningsform um skógrækt.
Helstu breytingar eru þær að í nýju
lögunum er ekki gert ráð fyrir endurgreiðslu
skógarbænda af afurðum eins og var í eldri
lögum og nú eru skýr ákvæði
um endurgreiðslu skógræktarframlaga og fyrningu
þeirra og ákvæði um þau tilvik þegar
skógarbóndi hefur vanefnt samning, skógarbóndi
vill segja upp samningi eða skógræktarverkefni
vill sjálft losna undan samningi.
Skógræktarsamningar sem gerðir
voru með stoð í eldri lögum halda gildi sínu
og ákvæði nýju laganna gilda um eldri skógræktarsamninga
eftir gildistöku þeirra, eftir því sem við
á. Öllum skógarbændum sem eru með eldri
samninga er gefinn kostur á að gera nýjan samning
í kjölfar gildistöku nýju laganna með
þeim lögfylgjum sem þeim fylgja, þ.e. ekki
stofnast endurgreiðsluskylda við skógarhögg
o.fl.
Bændur sem kjósa að gera
ekki nýjan samning eru skuldbundnir af gamla samningnum,
og þeim réttindum og skyldum sem af honum leiða.
Þeir skógarbændur sem óska
eftir að gera nýjan samning eru beðnir að fylla
út eyðublað með ósk um endurnýjun
samnings og senda til okkar. Við
munum í framhaldinu útbúa nýjan samning
og senda til undirritunnar.
Ef eitthvað er óljóst hikið
ekki við að hafa samband.