Fréttir
Á döfinni
Lykiltölur
Myndasafn
Fræðsluefni
: skógrækt
: skjólbelti
Skógarbændur
: eyðublöð
: vinnureglur
: taxtar
Félag skógarbænda
Björkin
Lög og reglugerðir
Starfsfólk
Forsíða
Ágætu skógarbændur!

Við vilum vekja athygli ykkar á Félagi skógarbænda á Norðurlandi. Félagið er hagsmunafélag skógarbænda og er nauðsynlegt þegar svo margir bændur stunda þessa nýju búgrein.

Tilgangur félagsins er m.a. að bæta aðstöðu skógræktar sem atvinnugreinar og stuðla að fræðslu til skógarbænda. Félagið tilnefnir einn mann í stjórn Norðurlandsskóga og reynir á þann hátt að tryggja hagsmuni skógarbænda innan verkefnisins. Sambærileg félög starfa í öðrum landshlutum og regnhlífarsamtök þessara eru Landsamtök skógareigenda (LSE) sem starfa líkt og önnur búgreinasamtök. LSE eru félagar í Bændasamtökum Íslands og eiga fulltrúa á Búnaðarþingi.

Félagið gefur út fréttabréf “Björkina” í samstarfi við Norðurlandsskóga og sendir félagsmönnum nokkrum sinnum á ári. Björkinni er ætlað að auglýsa skógrækaruppákomur og námskeiðahald og koma á framfæri bæði faglegum og handhægum upplýsingum frá stjórn félagsins og Norðurlandsskógum. Síðast en ekki síst eru félagsmenn hvattir til að nýta bréfið til að koma skoðunum sínum á framfæri varðandi hagsmunamál skógarbænda og miðla reynslu sinni til annarra í félaginu.

Við hvetjum alla nýja skógarbændur til að ganga í félagið.

Ganga í félagið: Eyðublað á Word eða PDF

Stjórnina skipa:

Anna Ragnarsdóttir formaður Gsm 893 2615, kritholl@simnet.is
Erlingur Aðalsteinsson varaformaður Gsm 463 1400, sulur@islandia.is
Páll Ingvarsson gjaldkeri Gsm 661 7627, pall_reyk@nett.is
Sigurlína Jóhannesdóttir ritari Gsm 895 2169, sjj@kopasker.is

Davíð Herbertsson meðstjórnandi Gsm 824 6410, gunnadaddi@visir.is

Með skógræktarkveðju,
Félag skógarbænda á Norðurlandi

Norðurlandsskógar | Gömlu gróðrarstöðinni | Krókeyri | 600 Akureyri | Sími 461 5640 | Fax 461 5648 | nls@nls.is