| Meðferð
frystra skógarplantna
|
| 1. Plöntur
eiga að vera þiðnar þegar þær eru
gróðursettar.
|
Rótin þiðnar
hægar en efri hluti plöntunnar ef hún er sett
frosin niður í jarðveginn og nær þá
ekki upp vatni. Rótin hefur þá ekki getu til
að sjá yfirvextinum fyrir vatni sem leiðir til þess
að plantan þornar og drepst. Plöntur sem eru frosnar
saman verða fyrir alvarlegum skaða á rótarkerfi
ef þær eru barðar eða rifnar í sundur.
|
| 2. Hvernig á
að þíða plöntur? |
Plöntur í
kössum á að þíða hægt í
skugga. Tími afþíðingar fer eftir því
hitastigi sem kassarnir eru í hverju sinni. Við hitastig
á bilinu 5° C – 10° C tekur ferlið 3- 4
daga. Sé hitastig hærra þiðna plönturnar
á styttri tíma. Aldrei skal láta sól
skína beint á kassana til að flýta fyrir
þiðnun, við það verður hitastig of hátt
í kössunum. Of mikill hiti getur valdið skemmdum
í frumum plantna sem hefur neikvæð áhrif
á vöxt og lifun eftir gróðursetningu. Mikill
hiti eykur líkur á því að grámygla
nái sér á strik í plöntunum og
valdi skemmdum á plöntuvefnum. Við mikinn hita ganga
plöntur fljótar á forða sinn. Hliðarflipar
á kössum eru opnaðir til þess að þiðnun
gangi fljótar fyrir sig, ef þess er óskað,
og það lofti um plönturnar en einnig svo að plöntur
njóti lágmarks birtu þegar þær þiðna
og lífsstarfssemi þeirra fer í gang. Ekki má
rigna á kassa, þeir geta mýkst upp og orðið
ómeðfærilegir.
|
| 3. Gróðursetning
á að fara fram sem fyrst eftir að plöntur þiðna.
|
Aðeins má
geyma plöntur í viku í kössum eftir að
þær eru þiðnar. Lengri geymsla dregur úr
þrótti plantnanna. Góð regla er að gróðursetja
plöntur sem fyrst eftir þiðnun. Ef gróðursetning
dregst og rótarklumpurinn fer að þorna er nauðsynlegt
að vökva plönturnar. Einnig ber að hafa í
huga að sama regla gildir um plöntur úr kössum
og plöntur úr bökkum, þær á
að gróðursetja vel vökvaðar. Þá
er kassinn opnaður með þar til gerðum rifflipa
og vökvað ofan í. Eftir vökvun verður að
ganga úr skugga um að plöntur standi ekki í
vatnspolli og að drena kassana ef svo er. Við vökvun
í kassana má búast við að þeir
linist upp með tímanum og verði ómeðfærilegri
og því meiri ástæða til að gróðursetja
plöntur sem fyrst eftir þiðnun. Ef kassar hafa linast
eftir vökvun og ekki er hægt að nota kassabelti (1.
mynd) má færa plöntur úr kössum yfir
í pokabelti (2. mynd) og nota þau við gróðursetninguna.
Dæmi um kassabelti
Ef búið er
að opna kassa þegar þeir eru fluttir á gróðursetningarstað
verður að skýla plöntunum fyrir sól og
vindi.
Dæmi
um pokabelti
|
| 4. Gróðursetja
á frystar skógarplöntur fyrir 20. júní.
|
Plöntur þurfa
vissan lágmarkstíma fyrir eðlilegan vöxt
og vetrarfrágang. Verði þessi tími of stuttur
hafa plönturnar ekki tækifæri á að fara
í gegnum alla þá ferla sem nauðsynlegir
eru til að byggja upp frostþol fyrir veturinn og hætt
er við að þær þoli ekki haust- og vertarhörkur.
|
| 5. Vanda skal
til frágangs á umbúðum. |
| Ganga á vel frá
umbúðum utan af plöntunum. Rusl á gróðursetningasvæðum
getur varpað neikvæðri mynd á vinnu skógarbænda
og landshlutabundnu skógræktarverkefnin . Hirða ætti
allan pappa og koma fyrir í viðeigandi ferli, endurvinnslu
eða annað. |