Fréttir
Á döfinni
Lykiltölur
Myndasafn
Fræðsluefni
: skógrækt
: skjólbelti
Skógarbændur
: eyðublöð
: vinnureglur
: taxtar
Félag skógarbænda
Björkin
Lög og reglugerðir
Starfsfólk
Forsíða
 
Eldri fréttir
  
2006 
2005
2004
2002-2003

 

Eldri fréttir 2002-2003
Rúmlega milljón skógarplöntur gróðursettar á vegum Norðurlandsskóga á liðnu ári.

Norðurlandsskógaverkefnið hefur nú verið starfandi rúmlega þrjú ár. Á þeim tíma hafa verið gróðursettar rúmlega 2,5 miljónir plantna á vegum verkefnisins á Norðurlandi. Skógræktarsamningar hafa verið gerðir fyrir rúmlega hundrað jarðir á starfssvæði verkefnisins sem nær allt frá Langanesi vestur í Hrútafjörð.
Síðastliðið sumar var einstaklega hagstætt trjágróðri og vöxtur mjög mikill í mörgum tegundum. Þó setti hretið síðast liðið vor strik í reikninginn sérstaklega hjá lerki og greni.
Árið 2003 voru gróðursettar rúmlega milljón plöntur á 85 jörðum. Hver skógarbóndi gróðursetti að meðaltali rúmlega 12.000 plöntur eða í um 5 hektara lands. Þetta þýðir að grundvöllur var lagður að um 420 ha. skógi á Norðurlandi í ár.
47 bændur gróðursettu samtals um 46 kílómetra af skjólbeltum á vegum verkefnisins.
Mjög mikill áhugi hefur verið á verkefninu á meðal landeigenda frá upphafi og hafa fjárveitingar ekki dugað til að hægt væri taka inn í verkefnið alla þá sem óska inngöngu. Um sextíu jarðir á Norðurlandi eru nú á biðlista um að komast inn í Norðurlandsskóga.

.

27 nýjar jarðir teknar inn í Norðurlandsskóga

Stjórn Norðurlandsskóga ákvað í desember að taka inn 27 nýjar jarðir í verkefnið. Nú eru 110 jarðir komnar inn í verkefnið auk þeirra sem stunda skjólbeltarækt. Heldur hefur fækkað á biðlistanum þökk sé auknu fjármagni sem fékkst til verkefnisins á þessu ári. Rúmlega 60 jarðir bíða þess nú að fá inngöngu í Norðurlandsskóga. Vonandi verður hægt að útrýma þessum biðlista á allra næstu árum þannig að sem flestir landeigendur á Norðurlandi geti tekið þátt í verkefninu

6.1.2003

Ráðstefna á Kirkjubæjarklaustri 26.-27. febrúar 2003

Suðurlandsskógar, Landgræðsla ríkisins og Skógrækt ríkisins standa fyrir ráðstefnu um skipulag við mismunandi landnýtingu svo sem skógrækt og landgræðslu. Breyttar áherslur í landnýtingu hér á landi kalla á umræður um viðhorf og vinnubrögð í skipulagsmálum. Ráðstefnan verður sett miðvikudaginn 26. febrúar kl. 13:00 og er öllum opin. Skógarbændur á Norðurlandi eru hvattir til að sækja þessa áhugaverðu ráðstefnu. Sjá nánar á heimasíðu Suðurlandsskóga www.sudskogur.is

6.1.2003

Aukið fjármagn til Norðurlandsskóga

Samkvæmt nýlega samþykktu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar verður fjárveiting til Norðurlandsskóga 90 miljónir á næsta ári. Á árinu sem senn er liðið var fjárveitingin talsvert undir væntingum eða 50 miljónir. Af þeim sökum hefur ekki verið hægt að taka inn neinar nýjar jarðir á þessu ári og biðlistinn nú samanstendur af 103 jörðum á starfssvæðinu. Einnig hefur þurft að gæta mikils aðhalds í verkefninu á þessu ári og öllum framkvæmdum sem hægt hefur verið að fresta hefur verið frestað. Má þar nefna grisjun, tvítoppaklippingar, slóðagerð ofl.

Það eru því afar góð tíðindi fyrir skógarbændur að fjárveitingavaldið skyldi sýna vilja sinn í verki og styðja myndarlega við Norðurlandsskógaverkefnið og vonandi verður framhald þar á. Nauðsynlegt er fyrir verkefnið að fá rammaáætlun nokkur ár fram í tímann varðandi fjárveitingarnar þannig að auðveldara verði að gera áætlanir um plöntukaup og aðrar framkvæmdir.

10.12.2002

Björkin

Fréttabréf Félags skógarbænda á Norðurlandi getur þú lesið hérna

Netföng

Skógarbændur og félagsmenn í félagi skógarbænda á norðurlandi eru hvattir til að senda netföngin sín til Norðurlandsskóga svo auðvelt sé að koma á framfæri skilaboðum og ábendingum um efni á netinu.

Grænni skógar á norðurlandi

Fyrstu tveimur námskeiðunum í námskeiðaröðinni Grænni skógar á norðurlandi er nú lokið. 28 þátttakendur eru skráðir í námið sem byggist upp á 16 helgarnámskeiðum sem haldin verða á næstu 3 árum.
Meira


Skil á framkvæmdarskráningarblöðum

Skógarbændur eru beðnir að skila inn framkvæmdaskráningarblöðum vegna haustgróðursetninga sem fyrst. Stefnt er á að taka þann háttinn upp að greiða ekki fyrir gróðursetningar fyrr en skráningarblöð hafa borist Norðurlandsskógum.

Svæðisskrifstofa opnuð á Húsavík

Norðurlandsskóga hafa opnað svæðisskrifstofu á Húsavík fyrir Þingeyjarsýslur. Skrifstofan er á 3. hæð í Kaupfélagshúsinu, Garðarsbraut 5. Skrifstofan er opin mánudaga til fimmtudaga frá 9-17. Símanúmerið er hið sama eða 465 2434 en faxnúmerið er nýtt: 464 0406.

20.08.2002


Þeir sem hafa sent inn umsóknir um skjólbeltarækt, stendur til boða að fá gerðar skjólbeltaáætlanir fyrir sínar jarðir. Þeir eru beðnir að hafa samband við starfsmenn NLS fyrir 15.september svo hægt sé að kortleggja jarðir þeirra í haust. Þá verður hægt að skipuleggja undirbúning og jarðvinnslu og hefja skjólbeltarækt vorið 2003.

27.8.2002

500.000. tréð gróðursett í Glæsibæ


Föstudaginn 23. ágúst gróðursettu hjónin Davíð Guðmundsson og Sigríður Manasesdóttir 500.000. plöntuna á jörð sinni Glæsibæ í Hörgárbyggð. Gróðursetning hófst á Glæsibæ haustið 1991 og hafa þau hjón því gróðursett á milli 40.000 og 50.000 plöntur árlega.
Þetta er enn sem komið er lang umfangsmesta skógrækt einstaklinga á Norðurlandi.

Nýja hliðið inn í Hálsaskóg

 

 

 

Davíð gróðursetur tré númer 500.000 með aðstoð Siggu

 
Norðurlandsskógar | Gömlu gróðrarstöðinni | Krókeyri | 600 Akureyri | Sími 461 5640 | Fax 461 5648 | nls@nls.is