Eldri
fréttir 2005 |
|
| |
Metár
í gróðursetningu á Norðurlandi 29.11.2005
Met var sett í gróðursetningu
á Norðurlandi í ár. Á vegum Norðurlandsskóga
voru gróðursettar tæplega 1,4 miljónir plantna
sem er talsverð aukning frá því í
fyrra en þá voru gróðursettar ríflega
1,1, miljónir plantna. Gróðursett
var á 100 jörðum en alls eru nú 120 jarðir
með þinglýsta skógræktarsamninga um
alls tæplega 6.500 hektara. Skjólbelti voru ræktuð
á 47 jörðum alls um 56 km. sé miðað
við einfalda röð.

|
Skógarbændur
frá Vestfjörðum í heimsókn
Um síðast liðna
helgi komu þátttakendur í Grænni skógum
á Vestfjörðum í heimsókn á
Norðurland. Starfsfólk Norðurlandsskóga tók
að sér að halda námskeið fyrir hópinn
um framleiðslu skógarplantna. Fyrirlestrar voru haldnir
í höfuðstöðvum Norðurlandsskóga
í Gömlu gróðrarstöðinni, á
föstudag og laugardagsmorgun. Seinnipart laugardags var síðan
farið í heimsókn í Gróðrarstöðina
í Kjarna þar sem Jón Kr. Arnarsson tók
á móti hópnum og sýndi ræktunarstöðina
og útskýrði ræktunarferlið. Námskeiðinu
lauk síðan með ferð að Vöglum þar
sem Skógrækt ríkisins rekur m.a. fræframleiðslu
í gróðurhúsi. Yfir 30 þátttakendur
eru í Grænni skógum á Vestfjörðum
og var mætingin á námskeiðið 100% þrátt
fyrir að langan veg væri að fara og sýnir það
áhuga þeirra Vestfirðinga á verkefninu.
(V.J 12.10.2005) |

|
Haustgróðursetningu
að ljúka 06.10.2005
Haustgróðursetningu er nú
um það bil lokið. Tíðin í september
hefur verið heldur leiðinleg fyrir gróðursetningafólk
en nokkuð hagstæð plöntum þar sem raki
hefur verið nægur og rúmlega það.
Alls voru gróðursettar um
hálf miljón plantna í haust og verður því
heildargróðursetning ársins um 1.3 miljónir
plantna sem er nýtt met á Norðurlandi.
Bændur eru hvattir til að skila
framkvæmdaskráningum sem fyrst þannig að
hægt verði að hefja vinnu við uppgjör. |
| 
Guðríður
og Johan í leyfi
Guðríður og Johan eru
bæði í fæðingarorlofi þessa dagana,
Gugga kemur til baka eftir ár en Johan verður í
fríi í mánuð núna og svo aftur í
hálfu starfi í janúar og febrúar
|
|
Uppgjör
vegna vorgróðursetninga
|
Byrjað verður að vinna í uppgjöri vegna
vorgróðursetningar og annara framkvæmda 10. júlí.
Þeir skógarbændur sem ekki hafa skilað framkvæmdaskráningum
fyrir þann tíma fá ekki sitt uppgjör fyrr
en með haustuppgjörinu í byrjun desember.
Vinsamlegast virðið þennan skilafrest.
Skógarbændur eru minntir á að skila bökkum
á dreifingastöðvar. Ef einhverjir eru með bakka
frá gamalli tíð eru þeir beðnir að
skila þeim sem fyrst á næstu dreifingastöð.
(20.6.2005)
|
|
18
skógarbændur á Norðurlandi útskrifaðir
úr grænni skógum. (Fréttatilkynning
frá LBH) |
| Laugardaginn 11. júní
útskrifuðustu 18 skógarbændur á Norðurlandi
úr Grænni skógum, sem er skógræktarnám
á vegum Starfs- og endurmenntunardeildar Landbúnaðarháskóla
Íslands. Bændurnir hafa verið í náminu
í þrjú ár og er nám þeirra
metið til 16 eininga á framhaldsskólastigi. Þeir
eiga það allir sameiginlegt að vera í Norðurlandsskógum
en starfsfólk Norðurlandsskóga kom mikið að
kennslunni ásamt öðrum sérfræðingum
á sviði skógræktar- og landgræðslu
í landinu. Í dag eru um 120 bændur í Grænni
skógum víða um land en Landbúnaðarháskólinn
sér um framkvæmd námsins en þeir aðilar
sem koma að náminu auk skólans eru Skógrækt
ríkisins, Landgræðsla ríkisins, landshlutabundnu
skógræktarverkefnin og Félög skógarbænda
í viðkomandi landsfjórðungi. Allir nemendur
í Grænni skógum hafa það að markmiði
að rækta skóg á jörðum sínum
og vilja leggja enn frekari áherslu á það
með því að setjast á skólabekk
og fræðast um hina ýmsu þætti skógaræktar.
Í náminu er m.a. fjallað um val á trjátegundum,
skógarhönnun og landnýtingaráætlanir,
undirbúning lands fyrir skógrækt, framleiðslu
og gróðursetningu skógarplantna, skógarumhirðu,
skógarnytjar, sjúkdóma og skaða í
skógi, skjólbelti, skógarhöggsækni
og verndun fornminja og náttúru í skógrækt
svo eitthvað sé nefnt. Þá er vikuferð
til útlanda hluti af náminu þar sem þátttakendur
kynnast því helsta sem nágrannaþjóðir
okkar eru að gera í skógrækt. Í náminu
er mikil áhersla lögð á vettvangsferðir
þar sem þátttakendur fara út í skóg
og fá þannig meiri og betri tilfinningu fyrir því
sem verið er að fjalla um hverju sinni. Skógarbændur
á Vesturlandi munu bætast í hóp þeirra,
sem gefst kostur á að stunda nám í Grænni
skógum síðar í sumar þegar skrifað
verður undir samstarfssamning við Vesturlandsskóga
um verkefnið. Þá má geta þess að
nú er unnið að námsbók fyrir Grænni
skóga, sem kemur út í haust. Meðfylgjandi
mynd var tekin af útskriftarhópi Grænni skóga
á Norðurlandi á laugardaginn, ásamt forsvarsmönnum
Norðurlandsskóga og Landbúnaðarháskólans
en útskriftin fór fram á Hofi í Vatnsdal
í Austur Húnavatnssýslu. (21.6.2005) |
|
|
Sumarstarfsmenn
hjá Norðurlandsskógum
Tveir sumarstarfsmenn verða hjá Norðurlandsskógum
í sumar. Hildur Stefánsdóttir í Laxárdal
í Þistilfirði verður við störf í
júní og júlí. Hún mun m.a.
annast úttektir á gróðursetningum í
N-Þing ásamt því að skrásetja
og meta árangur skjólbelta- og skógræktar
á svæðinu. Selfyssingurinn Páll Sigurðsson
skógfræðinemi mun vinna við endurkortlagningu
á elstu skógræktarsvæðunum í
júlí og ágúst. Tilgangurinn með
þeirri vinnu er fyrst og fremst að meta árangur
og þörf á grisjun og íbótum í
reiti þar sem gróðursetningar eru of gisnar.
(20.6.2005)
|
|
|
| Gróðursetningar
að hefjast (26.5.2005) |
Starfsmenn Norðurlandsskóga hafa fyllst bjartsýni
við það að hitinn er nú farin að nálgast
10 gráður og útlit fyrir hægt hlýnandi
veður. Byrjað verður að keyra út plöntur
á dreifingastöðvar í dag (fimmtudag 26/5) fyrsta
sendingin kemur í Kjarna og ef allt gengur vel verða komnar
plöntur á allar dreifingastöðvar um miðja
næstu viku.
Bændur eru minntir á að hringja á undan sér
á dreifingastöðvar til að tryggt sé að
afgreiðsla gangi fljótt og vel fyrir sig. Ekki er víst
að allar tegundir komi í fyrstu ferðunum þannig
að það borgar sig að hringja og kanna ástandið
til að menn fari ekki fýluferð. Áburður
er einnig afhentur á dreifingastöðvum.
Tengiliðir á dreifingastöðvum eru eftirfarandi: |
| Dreifingastöð |
Opnunartími |
Tengiliður |
Símar |
| Kjarni |
Virka daga 8-18 |
Ólöf |
462-4047 eða 698-1503 |
| Krithóll |
Virka daga 16-18 |
Anna |
893-2615 |
| Hólabak |
Virka daga 15:30-17:30 |
Aðalheiður |
452-4473 |
| Vaglir |
Virka daga 14-16 |
Guðrún |
462-5175 |
| Sandfellshagi |
Eftir samkomul. |
Gunnar |
822-6108 |
| |
|
|
| Ársskýrsla
Norðurlandsskóga 2004 komin út |
Ársskýrsla Norðurlandsskóga
2004 er komin út, þeir sem hafa áhuga á
að fá eintak af henni hafi samband við Norðurlandsskóga
í síma 461 5640 eða nls@nls.is
.
(12.5.2005) |
Efnisyfirlit
Samantekt
Tíðarfar og vöxtur
Stjórn og starfsmenn
Samningar
Námskeið og kynning
Áhöld og tæki
Plöntukaup
Fjármál
Rannsóknarstarf
Gróðursetningartilraun
Asparverkefni
Smittilraun á gráelri
Kvæmatilraun með skógarfuru
Kvæmatilraun með rauðgreni
Framleiðsla vorunga af birki og lerki til sumargróðursetningar
Framkvæmdir – heildaryfirlit
Skógrækt
Skjólbelti
Húnavatnssýslur – Samantekt
Skagafjarðarsýsla –
Samantekt
Eyjafjarðarsýsla – Samantekt
Þingeyjarsýslur – Samantekt
Norðurlandsskógar 5 ára
Fundargerðir stjórnar Norðurlandsskóga 2004
|
 |
|
| Skógrækt
- í sátt við umhverfið |
| Ný vefsíða
var opnuð í gær, 18 apríl, af landbúnaðarráðherra
og umhverfisráðherra, nefnist hún "skógrækt
- í sátt við umhverfið". Efnið
á síðunni er niðurstaða starfshóps
sem skipaður var til að vinna að gerð leiðbeininga
varðandi skipulag skógræktar í sátt
við umhverfið. Starfshópurinn var skipaður fulltrúum
Skógræktar ríkisins, landshlutabundinna skógræktarverkefna,
Skógræktarfélags Íslands, Umhverfisstofnunar,
Náttúrufræðistofnunar Íslands, Fuglaverndar,
Landverndar og Fornleifaverndar ríkisins. (19.4.2005) |
|
| Vantar
verktaka í gróðursetningu |
Nokkrir skógarbændur
hafa leitað til Norðurlandsskóga og spurst fyrir
um fólk sem gæti tekið að sér gróðursetningar
í sumar.
Í lögum um landshlutabundin
skógræktarverkefni er ákvæði þess
efnis að skógarbændur hafi forgang að slíkri
verktöku hjá öðrum skógarbændum,
ef framboð vinnuafls sé það mikið að
um störfin sé slegist, en sú virðist ekki
vera raunin nú.
Norðurlandsskógar hvetja þess
vegna þá sem hafa áhuga á að taka
að sér gróðursetningu fyrir skógarbændur
í sumar að hafa samband í síma 461 5640
eða með tölvupósti á nls@nls.is.
Við munum þá veita nánari upplýsingar
og benda þeim skógarbændum sem til okkar leita
á ykkur. Nauðsynlegt er að hafa reynslu af gróðursetningu
og skyldum störfum.
Í framtíðinni verður
safnað saman hér á heimasíðuna upplýsingum
um þá sem taka að sér verk fyrir skógarbændur
og hvaða þjónustu þeir veita. (21.3.2005) |
|
| Tímamælingar
við gisjun í gangi |
| Á komandi árum
verður grisjun og umhirða skógar stór þáttur
hjá bændum í Norðurlandsskógaverkefninu.
Búast má við að eftir 5-10 ár þurfi
að fara yfir þau svæði sem fyrst var gróðursett
í og framkvæma fyrstu grisjun sem felst aðallega
í “bilun” það er að segja, bilið
milli trjánna er jafnað með því að
saga burtu slökustu einstaklinganna til að rýma fyrir
þeim sem vænlegri eru. Þegar þessi vinna verður
komin í hámark hjá Norðurlandsskógum
má búast við að fara þurfi í gegn
um allt að 200 hektara árlega. |
 |
| Johan Holst starfsmaður
Norðurlandsskóga hefur notað undanfarna blíðviðrisdaga
til að gera tímamælingar við grisjun með
kjarrsög. Tilgangurinn er að átta sig á kostnaði
við fyrstu grisun. Kjarrsögina er hægt að nota
þar til bolir trjánna hafa náð þvermáli
sem er meira en 12-15 cm. Eftir það verður að nota
keðjusög en sú vinna er mun seinlegri og þar
af leiðandi dýrari. (3.3.2005) |
|
| Kynning
á sérstöku svæðisskipulagi fyrir Norðurlandsskóga |
Norðurlandsskógar,
Skógrækt ríkisins og Skipulagsstofnun boða
til kynningarfunda um tillögu að Sérstöku svæðisskipulagi
um skógrækt á starfssvæði Norðurlandsskóga
frá Langanesi að Hrútafirði. Tillagan er í
samræmi við 15. gr. skipulags og byggingarlaga.
Búnir eru fundir á Húsavík og í
Varmahlíð en á morgun verður fundur í
Gömlu Gróðrarstöðinni við Eyjafjarðarbraut,
Akureyri, kl.10:00 – 12:00.
Fundurinn er öllum opinn. Áríðandi er að
sem flestir fulltrúar í sveitarstjórnum og
hagsmunaaðilar sjái sér fært að mæta
á fundinn.
Allar nánari upplýsingar
veita undirrituð:
Brynjar Skúlason, Norðurlandsskógum
sími 461-5642: brynjar@nls.is
Hallgrímur Indriðason, Skógrækt
ríkisins sími 461 5644:hallgrimur@skogur.is
Matthildur Elmarsdóttir, Skipulagsstofnun
simi 595-4100:matthildur@skipulag.is
|
|
| Framkvæmdaóskir
sumarsins |
Við erum byrjuð
að velta fyrir okkur framkvæmdum sumarsins og förum
fljótlega að skipta niður plöntum á milli
jarða. Þeir sem ekki hafa komið skilaboðum til
sinna svæðisstjóra um óskir fyrir sumarið
eru beðnir að gera svo hið fyrsta.(28.2.2005)
|
|
| Umsóknafrestur
um skjólbelti |
| Þeir skógarbændur
sem ætla sér að leggja skjólbelti þurfa
að láta vita fyrir 15. apríl. Þeir sem taka
við sér eftir þann tíma þurfa að
bíða fram á næsta ár. Þetta er
nauðsynlegt þar sem við þurfum að panta plast
og skipta niður plöntum. Við erum að endurmeta reglur
varðandi skjólbeltaframlögin og munum miða við
að ekki verði lagðir minna en 500 metrar á hverjum
bæ. Þetta er einkum vegna þess hversu mikill kostnaður
fylgir plastlagningunni og allri umsýslu ef mjög stutt
belti eru víða. Undantekningar verða þó
gerðar á þessum reglum á þeim svæðum
sem skilyrði eru erfiðust og lítil reynsla komin á
ræktun. (28.2.2005) |
|
| 5
ára afmæli Norðurlandsskóga |
Stjórn Norðurlandsskóga
hélt í dag 33. fund sinn, en á þessum
degi eru 5 ár liðin frá því að
fyrsti stjórnarfundur verkefnisins var haldinn.
Á þessum afmælisfundi voru m.a. teknar inn 11
nýjar jarðir í verkefnið og stefnt er að
því að taka inn annan eins fjölda fyrir vorið.
Þannig tekst á þessu ári að útrýma
biðlistanum sem verið hefur um inngöngu í verkefnið
frá upphafi.
Á þessu ári er stefnt að því
að gróðursetja um 1,5 miljónir plantna og
væntanlega verður fjöldi jarða með skógræktarsamninga
orðin um 130 í árslok.
Frá upphafi hafa verið gróðursettar
3.754.558 plöntur, þar af 3.572.888 skógarplöntur
og 181.670 skjólbeltaplöntur. (8.2.2005) |
|
|
| Norðurlandsskógar
flytja |
Norðurlandsskógar hafa flutt
skrifstofuaðstöðu sína úr Búgarði,
Óseyri 2 í Gömlu gróðrarstöðina
sem er nær 100 ára gamalt hús í innbæ
Akureyrar. Norðurlandsskógar munu hafa aðstöðu
í húsinu ásamt starfsmönnum Skógræktar
ríkisins á Norðurlandi.
Gamla gróðrarstöðin er sögufrægt hús
og ekki síður garðurinn sem er í brekkunni ofan
við húsið |
|
Um
Gömlu gróðrarstöðina
Í bókinni Ásýnd
Eyjafjarðar segir eftirfarandi um sögu gömlu gróðrarstöðvarinnar:
Ræktunarfélag Norðurlands sem var stofnað 1903
fékk sama ár að gjöf 25 dagsláttur
(8 ha) frá Akureyrarkaupstað. Trjárækt var
strax hafin neðan við brekkuna og í Naustagili. Árið
1906 var reist íbúðarhús fyrir tilraunastjórann
sem síðar var mikið endurbætt. Húsið
og hinn mikli trjágarður umhverfis það hefur
síðan verið nefnd Gróðrarstöðin.
Þar fóru lengi fram merkar tilraunir í landbúnaði,
fyrst á vegum Ræktunarfélagsins en frá
1947 á vegum ríkisins uns starfsemin var flutt 1974
að Möðruvöllum í Hörgárdal.
Framan af önnuðust framkvæmdastjórar Ræktunarfélagsins
trjáræktina í Gróðrarstöðinni,
en á árunum 1915-1923 annaðist Guðrún
Þ. Björnsdóttir garðinn og Jóna M.
Jónsdóttir frá Sökku í Svarfaðardal
á árunum 1924-1946, að tveimur árum undanskildum
er Svava Skaptadóttir gengdi starfinu. Það var
mikið lán að þessar konur sinntu gróðrinum
af natni, þannig að Gróðrarstöðin
varð víðfræg fyiri fegurð og grósku.
Þær skrifuðu merkar skýrslur um vöxt
og þrif trjánna á hverju ári í
Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands og gerðu
einnig árlegar mælingar á trjávexti.
Í brekkunni sunnan við Naustagilið lét Sigurður
Sigurðsson gróðursetja ýmsar tegundir af trjáplöntum
á árunum 1908-1909. “Tilgangurinn var að
fá úr því skorið, hvort trjáplöntur
gætu vaxið og dafnað sæmilega í óvöldu
landi án nokkurrar umhirðu, fyrr en að því
kæmi að þyrfti að grisja” skrifar Ármann
Dalmannsson 1955. Sigurður Blöndal Fyrrverandi skógræktarstjóri
skrifar 1990: “ Þessi skógarteigur (sem óx
upp af gróðursetningunni 1908-1909) er einn hinn merkasti
á Íslandi frá skógræktarsögulegu
sjónarmiði”
Ljóst er að ákjósanlegri
umgjörð fyrir skógræktarstarfsemi verður
vandfundinn og er það von okkar að með tímanum
takist að festa þennan sögufræga stað í
sessi sem miðstöð skógræktar á
Norðurlandi enn á ný.
(8.2.2005) |
|
| Endurbætt
heimasíða opnuð |
| Ný og endurbætt
heimasíða NLS var opnuð 8. febrúar. Guðríður
Baldvinsdóttir svæðisstjóri í Þingeyjarsýslu
smíðaði vefinn og er tekin við vefumsjón
af Johanni Holst. Allar ábendingar og tillögur að
efni á vefinn eru vel þegnar.
(8.2..2005) |
|
| |