Grænni skógar II á Norðurlandi |
Grænni skógar II er yfirskrift á öflugu skógræktarnámi sem hugsað er sem framhald af námskeiðaröðinni Grænni skógar I. Þurfa því nemendur að hafa lokið námskeiðaröð Grænni skóga I eða sambærilegu námi. Námið samanstendur af 12 námskeiðum. Fyrstu námskeiðin verða kennd á vorönn 2011 og þau síðustu haustið 2013 (að meðaltali 2 námskeið á önn).
Ekki hefur áður verið kennd námskeiðaröð Grænni skóga II á Norðurlandi.
|
Hvert námskeið stendur í tvo daga og þá yfirleitt frá kl. 16 til 19 á föstudegi og frá kl. 9 til 16 á laugardegi. Reynt verður að koma við verklegri kennslu og vettvangsferðum. Í upphafi annar verða gefnar út nákvæmar tíma- og staðsetningar fyrir hvert námskeið.
|
| Landbúnaðarháskóli Íslands sér um skipulag námsins í samstarfi við Norðurlandsskóga, Félag skógarbænda á Norðurlandi, Skógrækt ríkisins og Landgræðslu ríkisins. Lámarksfjöldi á námskeiðaröðina er 20 og þeir sem ljúka 80 % af námskeiðunum 12 fá námið metið til eininga á framhaldsskólastigi. |
| |
| Yfirlit
yfir námskeið: |
| Viðarfræði og viðarnytjar (haust 2011) |
Námsferð til Danmerkur (vor 2012) |
| Trjámælingar (vor 2011) |
Aðrar afurðir skógarins (haust 2012) |
| Skógarstígar - lagning og notagildi
(haust 2011) |
Lífið í skóginum (haust 2012) |
| Grisjun og skógarhögg (haust 2011) |
Viðjarnytjar II - Mismunandi afurðir (vor 2013) |
| Útlitshönnun og tegundaval í skóga og skjólbelti (haust 2011) |
Kolefnisbinding (vor 2013) |
| Ath. tímasetning einstakra námskeiða getur breyst. |
| |
| Þátttökugjald |
Þátttökugjald í Grænni skógum II á Norðurlandi er kr. 38.000 önnin (2 annir á ári).
Bændum er bent á að sækja um í starfsmenntasjóð Bændasamtaka Íslands (www.bondi.is). Þeir sem eiga rétt úr sjóðnum eru félagar í Bændasamtökum Íslands, (félagar í búnaðarfélagi eða félagi skógarbænda) sem hafa fasta búsetu á lögbýli og starfandi bændur, einstaklingar, hjón eða sambúðarfólk, sem stunda búnaðargjaldskyldan rekstur. Einnig er hægt að sækja um styrk til viðkomandi stéttarfélags.Innifalið í þátttökugjaldi er kennsla, vettvangsferðir, fæði (kaffi og hádegismatur) og námskeiðsgögn sett á skólavef. |
| |
| Skráning
og nánari upplýsingar |
Allar nánari upplýsingar fást hjá starfsmönnum Norðurlandsskóga (www.nls.is) í símum: 461 5640 (Valgerður) og 461 5642 (Brynjar) þar sem skráning fer fram, einnig fer fram skráning á netfanginu valgerdur@nls.is
Þá er einnig hægt að fá allar upplýsingar um námið hjá Björgvini Erni Eggertssyni, verkefnisstjóra Grænni skóga í síma 433-5305 eða í gegnum netfangið, bjorgvin@lbhi.is |
| |
Nánari upplýsingar um einstök námskeið má finna í bæklingi hér að neðan um Grænni skóga II.
Bæklingur
á PDF-formi ( 1MB )
|
 |