|
1. gr.
Tilgangur og markmið.
Í því skyni að skapa skógarauðlind
á Íslandi, rækta fjölnytjaskóga
og skjólbelti, treysta byggð og efla atvinnulíf,
skal eftir því sem nánar er ákveðið
í fjárlögum hverju sinni veita fé til
verkefna í skógrækt sem bundin eru við sérstaka
landshluta. Í hverju landshlutaverkefni skal stefnt að
ræktun skóga á að minnsta kosti 5% af flatarmáli
láglendis neðan 400 m yfir sjávarmáli.
2. gr.
Skilgreiningar.
Í lögum þessum, reglugerðum og reglum, settum
á grundvelli þeirra, er merking hugtaka sem hér
segir:
1.
Fjölnytjaskógrækt. Ræktun skógar
að teknu tilliti til fjölþætts efnahagslegs,
félagslegs og náttúrufarslegs hlutverks skógarins.
Meginmarkmið fjölnytjaskógræktar er tvenns
konar, nytjaskógrækt og landbótaskógrækt.
2.
Nytjaskógrækt. Ræktun skógar með það
að meginmarkmiði að framleiða viðarafurðir
til iðnaðarnota.
3.
Landbótaskógrækt. Ræktun skógar
á illa förnu eða eyddu landi með það
að meginmarkmiði að auka gróðurþekju,
bæta jarðveg og vatnsbúskap og auka þannig
gildi landsins til margvíslegra nytja.
4.
Skjólbelti. Raðir eða þyrping trjáa
og runna sem ræktuð eru í því skyni
að auka hvers kyns uppskeru og skýla búfénaði
og mannvirkjum tengdum landbúnaði eða sem undanfari
skógræktar á bersvæði.
3. gr.
Landshlutaverkefni í skógrækt.
Landbúnaðarráðherra er heimilt eftir því
sem fé er veitt til í fjárlögum hverju
sinni að starfrækja sérstök landshlutaverkefni
í skógrækt. Landshlutaverkefnin eru: Suðurlandsskógar,
Norðurlandsskógar, Skjólskógar á
Vestfjörðum, Vesturlandsskógar og Héraðs-
og Austurlandsskógar.
Verkefnin heyra undir landbúnaðarráðuneytið
og skulu þau veita framlög til fjölnytjaskógræktar
og skjólbeltaræktar á lögbýlum.
Landbúnaðarráðherra getur, í samráði
við Skógrækt ríkisins, falið stjórn
landshlutaverkefnanna umsjón annarra tengdra verkefna í
skógrækt og landbótum.
4. gr.
Landshlutaáætlanir.
Fyrir hvert landshlutaverkefni skal gera sérstaka landshlutaáætlun.
Áætlunin skal ná yfir 40 ár og taka mið
af bæði skógræktarlegum og hagrænum
forsendum. Áætlunina, eða einstaka þætti
hennar, skal endurskoða á 10 ára fresti, eða
oftar ef ljóst er að forsendur áætlunar
bresta, og leiðrétta ef afgerandi frávik verða.
Landshlutaáætlun skal taka mið af þeim fjárveitingum
sem Alþingi hefur ætlað landshlutaverkefnunum í
sérstakri þingsályktun þar um sem landbúnaðarráðherra
leggur fram og ná skal til 10 ára í senn.
5. gr.
Stjórn og rekstur.
Landbúnaðarráðherra skipar þriggja manna
stjórn fyrir hvert landshlutaverkefni til fjögurra ára
í senn. Skal einn stjórnarmanna tilnefndur af félagi
skógarbænda á viðkomandi svæði,
annar af Skógrækt ríkisins og sá þriðji
skipaður án tilnefningar.
Stjórnin hefur á hendi yfirstjórn verkefnisins
og samþykkir starfs- og fjárhagsáætlanir
þess. Hún ræður framkvæmdastjóra
sem annast daglegan rekstur.
Skógrækt ríkisins veitir aðstoð og faglegar
leiðbeiningar við verkefnin. Landbúnaðarráðherra
setur stjórnum landshlutaverkefnanna starfsreglur.
6. gr.
Samningar.
Landshlutaverkefni á hverju svæði skal gera samning
um þátttöku í skógræktarverkefni
við hvern skógarbónda sem fær framlag samkvæmt
ákvæðum þessara laga. Samningur skal taka
mið af gildandi landshlutaáætlun hverju sinni,
sbr. 4. gr., og skal þar tekið fram hvers konar fjölnytjaskógrækt
og/eða skjólbeltarækt stefnt er að.
Samningurinn skal hið minnsta vera til 40 ára og vera
á formi sem landbúnaðarráðherra hefur
staðfest, að fengnu áliti Skógræktar
ríkisins og Landssamtaka skógareigenda.
Ef annar en landeigandi, eða eftir atvikum annar en rétthafi,
undirritar samning um skógræktarverkefni skal landeigandi
samþykkja hann með áritun sinni. Samningnum skal
þinglýst á þá fasteign sem hann
tekur til.
7. gr.
Uppsögn samnings og endurgreiðsla framlaga.
Óski skógarbóndi eða landeigandi eftir
því að losa land sitt undan kvöðum samkvæmt
samningi um þátttöku í skógræktarverkefni
áður en samningstíma er lokið skal hann endurgreiða
framlög ásamt verðbótum samkvæmt vísitölu
neysluverðs. Endurgreiðslufjárhæðin lækkar
hlutfallslega út samningstímann og fyrnist um 2,5%
á almanaksári, hafi samningur verið virkur í
a.m.k. 10 ár, og fellur skuldin niður eftir 40 ár.
Framlög sem veitt eru síðustu 10 ár fyrir
uppsögn fyrnast þó ekki.
Óski verkefnisstjórn eftir því að
losna undan skuldbindingum samnings um þátttöku
í skógræktarverkefni skal skógarbónda
og landeiganda tilkynnt um það með sannanlegum hætti.
Uppsögn samkvæmt þessari málsgrein skal
tilkynnt fyrir 1. október og tekur gildi frá og með
næstu áramótum. Ekki skal endurgreiða samningsbundin
framlög vegna uppsagnar samkvæmt þessari málsgrein.
Eftir að samningur um þátttöku fellur niður
gilda ákvæði skógræktarlaga um skóginn
að öðru leyti.
8. gr.
Um samningsbrot.
Skýri þátttakandi rangt frá staðreyndum
sem máli skipta við skógræktarverkefni á
samningslandi eða vanefni að öðru leyti skyldur
sínar ítrekað eða í veigamiklum atriðum
er verkefnisstjórn heimilt að rifta samningi og endurheimta
framlög.
Áður en verkefnisstjórn tekur ákvörðun
skv. 1. mgr. skal skógarbónda, og landeiganda, sé
hann annar, með sannanlegum hætti gefinn kostur á
að koma sjónarmiðum sínum skriflega á
framfæri. Ákvörðun verkefnisstjórnar
skal rökstudd og má skjóta henni til landbúnaðarráðherra
innan 30 daga frá því að hún var
kynnt hlutaðeigandi. Kæra frestar því að
ákvörðun verði virk.
9. gr.
Þátttaka í kostnaði.
Þátttaka ríkissjóðs í kostnaði
hvers landshlutaverkefnis greiðist með sérstakri
fjárveitingu sem færð er undir landbúnaðarráðuneytið.
Landshlutaverkefnin greiða undirbúnings- og rekstrarkostnað
og laun stjórnar og fastra starfsmanna. Enn fremur greiða
þau allt að 97% af samþykktum kostnaði við
skógrækt.
10. gr.
Ársskýrslur og ársreikningar.
Ársskýrslur og ársreikningar landshlutaverkefna
skulu samþykktir af viðkomandi stjórn. Þar
skal koma fram staða framkvæmda og verkefnisins í
heild á hverjum tíma og yfirlit yfir ráðstöfun
fjármuna. Landshlutaverkefnin skulu skila ársskýrslu
sinni til Skógræktar ríkisins.
11. gr.
Reglugerð og almenn lagaákvæði.
Að öðru leyti en greinir í lögum þessum
fer um ræktun og meðferð skóga sem ræktaðir
eru fyrir tilstuðlan landshlutaverkefna í skógrækt
samkvæmt ákvæðum laga um skógrækt,
nr. 3/1955, með síðari breytingum.
Landbúnaðarráðherra setur með reglugerð
nánari ákvæði um framkvæmd þessara
laga.
12. gr.
Gildistaka og brottfall eldri laga.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Við
gildistöku þeirra falla úr gildi lög um Héraðsskóga,
nr. 32/1991, lög um Suðurlandsskóga, nr. 93/1997,
og lög um landshlutabundin skógræktarverkefni,
nr. 56/1999. Skógræktarsamningar sem gerðir voru
með stoð í þeim lögum halda gildi sínu.
Ákvæði laga þessara gilda um eldri skógræktarsamninga
eftir gildistöku þeirra, eftir því sem við
á.
Ákvæði til bráðabirgða.
Stjórnir núverandi skógræktarverkefna
halda umboði sínu þar til ný stjórn
hefur verið skipuð samkvæmt ákvæðum
laga þessara. Skógræktarverkefni samkvæmt
lögum þessum taka við réttindum og skyldum
eldri skógræktarverkefna.
Samþykkt á Alþingi 2. júní 2006.
|