Alaskaferð
Skógræktarfélags Íslands september 2001 |
|
|
Glenallen - Hvítgreni
er mjög áberandi þáttur í skógarmyndinni
í Alaska. Sjá má í hnakkann á
Sigrúnu fyrrverandi framkvæmdastjóra NLS fyrir
miðri mynd. |
|
|
| Íslenskt landslag eftir 100 ár?
Myndin er tekin í Denali þjóðgarðinum,
þar sem m.a. hæsta fjall Norður Ameríku, Denali
eða Mt. McKinley er. Þarna vorum við stödd 11.
september 2001, daginn sem árásin á tvíburaturnana
í New York var. |
|
|
| Þessi kom töltandi þegar
við vorum að keyra um Denali Þjóðgarðinn.
Þetta er birna og var hún með 2 húna sína
með sér. Þau röltu þarna um í dágóða
stund, alveg þétt við rúturnar og hámuðu
í sig ber við vegakantinn. |
|
|
| Svartgreni var mjög áberandi
á lélegra landi, sérstaklega í mýrum.
Þessi mynd er tekin rétt við Anchorage. |
|
|
| Paxon - inn til landsins. Alveg
með ólíkindum að sjá alaskavíðinn
og alaskaöspina vaxa á þessum grýttu áreyrum
eins og hvert annað illgresi. |
|
| |
| |