Fréttir
Á döfinni
Lykiltölur
Myndasafn
Fræðsluefni
: skógrækt
: skjólbelti
Skógarbændur
: eyðublöð
: vinnureglur
: taxtar
Félag skógarbænda
Björkin
Lög og reglugerðir
Starfsfólk
Forsíða
Skógarumhirða og skógarhögg
Benedikt Karlsson starfsmaður Skógræktarinnar á Vöglum við grisjun í stafafurulundi
Sigríður Bjarnadóttir, skógarbóndi í Hólsgerði í Eyjafjarðarsveit, mundar kjarrsögina á grisjunarnámskeiði Grænni skóga
 Rétt kvæmi, þróttmiklar og góðar skógarplöntur, vönduð vinnubrögð við gróðursetningu, klipping tvítoppa og hæfileg grisjun er lykillinn að vel heppnuðum timburskógi. Sérstaklega virðist umhirða og grisjun vera mikilvæg fyrir lerkiskógana. Myndin er af grisjuðum u.þ.b. 25 ára gömlum lerkiskógi á Dagverðareyri sem stendur í norðurjaðri skógarins og hefur í upphafi verið gróðursettur á berangur og því orðið fyrir miklu álagi vegna vinda og snjóa. Um er að ræða síberíulerki sem hefur mun lakara vaxtarform en rússalerki sem fyrst og fremst er notað í dag Norðanlands. Eins og myndin sýnir hafa sverustu bolirnir verið dregnir út úr skóginum og henta vel sem efniviður í göngustígakurl eða sem eldiviður. Annað tilfallandi efni svo sem grannir stofnar og greinar eru látin liggja í skógarbotninum og verða að næringu fyrir eftirstandandi tré sem munu væntanlega taka góðan vaxtarkipp næstu 5-10 árin.
 
Norðurlandsskógar | Gömlu gróðrarstöðinni | Krókeyri | 600 Akureyri | Sími 461 5640 | Fax 461 5648 | nls@nls.is