Fréttir
Á döfinni
Lykiltölur
Myndasafn
Fræðsluefni
: skógrækt
: skjólbelti
Skógarbændur
: eyðublöð
: vinnureglur
: taxtar
Félag skógarbænda
Björkin
Lög og reglugerðir
Starfsfólk
Forsíða
Hverjir geta tekið þátt

Allir sem hafa lögbýli til umráða geta tekið þátt í Norðurlandsskógaverkefninu. Lágmarksstærð lands miðast við 20 ha samfellt svæði. Markmiðið er að sem flestir geti tekið þátt í verkefninu. Fjöldi nýrra þátttakenda hverju sinni ræðst af fjárveitingum. Um leið og jörð er tekin inn í Norðurlandsskóga er gerður skógræktarsamningur á milli verkefnisins og skógarbónda.

Meðhöndlun umsókna
Þegar sótt hefur verið um inngöngu í Norðurlandsskóga, meta starfsmenn verkefnisins landið með tilliti til ýmissa umhverfis og ræktunarþátta. Eftir það mat er ákvörðun tekin um hvort tiltekið landsvæði standist þau skilyrði sem sett eru fyrir þátttöku í Norðurlandsskógum. Lögbýli í fastri ábúð hafa fyrsta forgang.
Framlög

Norðurlandsskógar greiða 97% af stofnkostnaði við skógrækt, hvort heldur er um að ræða timburskógrækt eða landbótaskógrækt.

 

Vinnureglur hjá Norðurlandsskógum varðandi meðhöndlun umsókna :

 

Umsóknir
Umsóknum um inngöngu í Norðurlandsskóga skal skila á þar til gerðu eyðublaði til framkvæmdastjóra verkefnisins.
Umsóknir eru bundnar við þá einstaklinga sem um sækja, verði eigendaskipti á jörðum falla umsóknir sem eru á biðlista úr gildi.

Við úttekt fyrirhugaðs skógræktarsvæðis
Eftir að umsókn hefur borist NLS skal svara henni bréflega innan mánaðar þar sem gerð er grein fyrir forgangsröðunarreglum og tiltekinn tími þar sem viðkomandi verður heimsóttur og svæðið metið.
Í fyrstu heimsókn skal afhenda tilvonandi skógarbónda skriflega greinagerð um ferli framkvæmdanna, uppgjörsmálum og áætluðum framkvæmdahraða. Einnig skal fara yfir hugsanlegar takmarkanir skógræktar skv. sérstöku svæðisskipulagi Norðurlandsskóga og fylla út þar til gert eyðublað í samvinnu við landeiganda.

Eftir að skógræktarsvæðið hefur verið metið skal stjórn Nls fjalla um umsóknina og umsækjanda skal svara bréflega um niðurstöðu stjórnar eigi síðar en 2 mánuðum eftir úttekt skógræktarsvæðisins. Sé umsókn hafnað skal fylgja með rökstuðningur stjórnar.

 

Norðurlandsskógar | Gömlu gróðrarstöðinni | Krókeyri | 600 Akureyri | Sími 461 5640 | Fax 461 5648 | nls@nls.is