| Hvað
eru Norðurlandsskógar |
| Norðurlandsskógar er landshlutabundið
skógræktarverkefni sem hefur þann megintilgang
að stuðla að skóg- og skjólbeltarækt
á Norðurlandi. Norðurlandsskógar eru öflugt
byggðaverkefni sem skapar auk þess nýja auðlind
og eflir atvinnulíf í framtíðinni. Svæði
Norðurlandsskóga nær frá Hrútafirði
austur á Langanes.
Ýtarlegur
kynningarbæklingur
Stjórn
Norðurlandsskóga
|
|
| Hvernig
skóg á að rækta |
| Fjölbreytni verður
eitt af megineinkennum Norðurlandsskóga, áhersla
verður lögð á að blanda saman tegundum og
skapa með því fjölbreytt vistkerfi. Þar
sem skógræktarskilyrði eru hagstæðust verður
leitast við að rækta timburskóga þar sem
markmiðið verður að skapa auðlind sem getur orðið
undirstaða fjölbreyttrar atvinnustarfsemi í framtíðinni.
Á þeim svæðum sem skilyrði til ræktunar
eru ekki eins góð verður í fyrstu ræktaður
landbótaskógur sem hefur ekki viðarvöxt að
aðalmarkmiði heldur aðrar skógarnytjar eins og
uppgræðslu lands, skjól fuglalíf, útivist,
ferðaþjónustu ofl. |
|
Skipulag |
|
Skipulagning er lykilorð markvissrar skógræktar.
Skógræktaráætlun er gerð fyrir hverja
jörð áður en framkvæmdir hefjast. Út
frá gróðurfari og öðrum umhverfisþáttum
er gerð tillaga að vali trjátegunda í skógræktarsvæðið.
Áhersla er lögð á að skógurinn falli
vel að landslagi, sé fjölbreyttur og aðlaðandi.
Náttúruminjar, söguminjar og athyglisverðir
staðir eru ekki klæddir skógi og gætt er að
mörgum fleiri þáttum, svo sem fuglalífi,
gróðurfari, berjalöndum og útsýni. |
| Skjólbeltarækt
|
|
| Áætlað er að
rækta 10.000 km af skjólbeltum á næstu
40 árum. Skjólbeltin eru annars vegar hugsuð sem
undanfari skógræktar og hins vegar til að auka
uppskeru eða veita búfénaði og mannvirkjum
skjól. Sérstök skjólbeltaáætlun
er gerð fyrir hverja jörð þar sem net skjólbelta
hefur mun meiri áhrif heldur en stök belti. |
 |
Fræðsla
|
|
| Fagmenntað starfsfólk
Norðurlandsskóga eru þátttakendum til ráðgjafar
og gera skógræktar- og vinnu áætlun fyrir
hverja jörð. Í hverri sýslu starfa svæðisstjórar
sem heimsækja skógarbændur reglulega og veita
leiðbeiningar. Norðurlandsskógar standa einnig fyrir
fræðslunámskeiðum um skógrækt
og tengd málefni fyrir þátttakendur verkefnisins.
|
| Framtíðaráform
|
| Til að byrja með
er starfsáætlun Norðurlandsskóga til 40
ára. Á þeim tíma er markmiðið
að klæða skógi allt að 5% láglendis
undir 400 m.y.s. Til að þetta markmið náist
þarf að græða upp eða gróðursetja
í tæplega 2000 ha árlega. Verkefnið skapar
þegar fjölda fólks atvinnu við skógrækt
samhliða öðrum búskap og er unnið í
nánu samstarfi við landeigendur á hverjum stað. |
 |